Psalms 75

1Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Asafs-sálmur. Ljóð. 2Vér lofum þig, ó Guð, vér lofum þig, og þeir er ákalla nafn þitt, segja frá dásemdarverkum þínum. 3,,Þegar mér þykir tími til kominn, dæmi ég réttvíslega. 4Þótt jörðin skjálfi með öllum þeim, er á henni búa, þá hefi ég samt fest stoðir. [Sela] 5Ég segi við hina hrokafullu: Sýnið eigi hroka! og við hina óguðlegu: Hefjið eigi hornin! 6Hefjið eigi hornin gegn himninum, mælið eigi drambyrði hnakkakerrtir!`` 7Því að hvorki frá austri né vestri né frá eyðimörkinni kemur neinn, sem veitt geti uppreisn, 8heldur er Guð sá sem dæmir, hann niðurlægir annan og upphefur hinn. 9Því að bikar er í hendi Drottins með freyðandi víni, fullur af kryddi. Af því skenkir hann, já, dreggjar þess súpa og sötra allir óguðlegir menn á jörðu. 10En ég vil fagna að eilífu, lofsyngja Jakobs Guði. [ (Psalms 75:11) Öll horn óguðlegra verða af höggvin, en horn réttlátra skulu hátt gnæfa. ]
Copyright information for Icelandic